Fotbolti.net
02.07.24 - 14:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kiernan Dewsbury-Hall í Chelsea (Staðfest)

Kiernan Dewsbury-Hall.

Kiernan Dewsbury-Hall.

Canon

Mynd: Chelsea

Miðjumaðurinn Kiernan Dewsbury-Hall er orðinn leikmaður Chelsea en þetta var staðfest núna rétt í þessu.

Kaupverðið er um 30 milljónir punda.
Þessi 25 ára gamli miðjumaður var einn sá besti í Championship-deildinni á síðustu leiktíð og hjálpaði Leicester að komast aftur upp í ensku úrvalsdeildina.

Enzo Maresca tók nýverið við stjórnartaumunum hjá Chelsea en hann þjálfaði Dewsbury-Hall hjá Leicester.

Brighton hafði einnig mikinn áhuga á Dewsbury-Hall en hann valdi að ganga í raðir Chelsea.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.