Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24430 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR30.01.2024, 06:00

Amelía Rún í Fylki (Staðfest)

<p>Amelía Rún Fjelsted hefur skrifað undir samning við Fylki út tímabilið 2025 en hún gengur til liðs við félagið frá Keflavík.</p>

FRÉTTIR29.01.2024, 13:45

Heiðdís yfirgefur Basel (Staðfest)

Varnarmaðurinn Heiðdís Lillýardóttir setti um helgina inn færslu á Instagram reikning sinn þar sem hún þakkaði svissneska félaginu Basel fyrir allt. <i>„Mikið um hæðir og lægðir en umfram allt er ég þakklát fyrir frábæra fólkið sem ég kynntist og vináttuna sem ég eignaðist fyrir lífstíð,"</I> skrifaði Heiðdís.

FRÉTTIR29.01.2024, 13:13

Barbára Sól í Breiðablik (Staðfest)

Barbára Sól Gísladóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við Breiðablik en hún kemur til félagsins frá Selfossi sem féll úr Bestu deildinni á síðasta tímabili. Barbára er fjölhæfur leikmaður sem hefur þó mest spilað í bakverði.

FRÉTTIR29.01.2024, 11:56

Söyuncu kynntur hjá Fenerbache (Staðfest) - Er þetta myndband of mikið?

Varnarmaðurinn Caglar Söyuncu hefur gengið í raðir Fenerbahce á láni frá Atletico Madrid út tímabilið. Þessi fyrrum leikmaður Leicester náði ekki að vinna sér inn sæti hjá spænska liðinu. Söyuncu var kynntur með myndbandi sem Taha Hashim fréttamaður Guardian finnst fara yfir strikið, við leyfum ykkur annars að dæma um það.

FRÉTTIR27.01.2024, 16:09

Jón Karlsson tekinn við Sindra (Staðfest)

Knattspyrnudeild Sindra hefur ráðið Jón Karlsson sem nýjan þjálfara meistaraflokks en hann er nýfluttur á Höfn í Hornafirði með fjölskyldu sinni.

FRÉTTIR27.01.2024, 12:30

Vestri missir Söndergaard til Hobro (Staðfest)

Danska félagið Hobro er búið að staðfesta komu Andreas Söndergaard til félagsins frá Vestra. Þetta er skellur fyrir Vestra sem var aðeins nýlega búið að krækja í hinn bráðefnilega Söndergaard.

FRÉTTIR26.01.2024, 20:40

Jón Veigar semur við Þrótt Vogum (Staðfest)

Jón Veigar Kristjánsson er búinn að skrifa undir samning við Þrótt Vogum en hann hefur undanfarin ár verið mikilvægur hlekkur í liði Augnabliks í 3. deildinni.

FRÉTTIR26.01.2024, 17:50

Ivo Grbic til Sheffield United (Staðfest)

Sheffield United hefur keypt króatíska markvörðinn Ivo Grbic frá Atletico Madrid en kaupverðið er ekki gefið upp. Þessi 28 ára leikmaður var varamarkvörður hjá Atletico en skrifar undir samning til 2027 á Bramall Lane. Hann gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið á morgun þegar það mætir Brighton.

FRÉTTIR26.01.2024, 17:30

Dendoncker til Napoli (Staðfest)

Miðjumaðurinn Leander Dendoncker er genginn í raðir Napoli á láni frá Aston Villa út tímabilið. Dendoncker kom við sögu í átta leikjum með Villa í úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Einungis einu sinni var hann í byrjunarliðinu.

FRÉTTIR26.01.2024, 15:25

Hákon Rafn til Brentford (Staðfest)

Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson hefur skrifað undir samning við enska félagið Brentford sem gildir fram á sumarið 2028. Brentford tilkynnti um komu hans í dag og beðið er eftir leikheimild. Félagið getur framlengt samninginn um tvö ár til viðbótar. Hann er keyptur frá sænska félaginu Elfsborg þar sem hann hefur varið mark liðsins undanfarið eitt og hálft tímabil. Hann var valinn besti markvörður sænsku deildarinnar í lok síðasta tímabils. Hann hélt hreinu oftast (13) og af markvörðum deildarinnar varði hann hlutfallslega hæstu prósentuna af skotum sem hann fékk á sig. Hákon er 22 ára og er hann uppalinn hjá Gróttu. Hann var keyptur til Elfsborg sumarið 2021 og lék hann sinn fyrsta leik þremur mánuðum eftir komu sína til Svíþjóðar. Í nóvember lék hann sinn fyrsta keppnisleik fyrir A-landsliðið þegar hann varði mark liðsins gegn Portúgal og fékk hann mikið lof fyrir frammistöðu sína.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.