Dendoncker til Napoli (Staðfest)

Markinu gegn United fagnað.

Mynd: EPA

Markinu gegn United fagnað.

Mynd: EPA
Miðjumaðurinn Leander Dendoncker er genginn í raðir Napoli á láni frá Aston Villa út tímabilið.
Dendoncker kom við sögu í átta leikjum með Villa í úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Einungis einu sinni var hann í byrjunarliðinu.

Belginn, sem er 28 ára, kom til Villa frá Wolves haustið 2022. Hann hefur alls komið við sögu í 36 leikjum með Villa.
Eina markið hans til þessa kom í 3-2 tapinu gegn Man Utd á öðrum degi jóla. Hann er annar leikmaðurinn sem Villa lætur frá sér í glugganum því miðjumaðurinn Finn Azaz var seldur til Middlesbrough.
Napoli er sem stendur í níunda sæti Serie A. Liðið varð ítalskur meistari á síðasta tímabili.
Samningur Dendoncker við Villa rennur út sumarið 2026.