FH fær lykilleikmann frá Fram (Staðfest)

Mynd: FH

Mynd: FH

FH er búið að næla sér í Breukelen Lachelle Woodard úr röðum Fram, en hún var í algjöru lykilhlutverki í Lengjudeildinni í fyrra.
Breukelen skoraði 11 mörk í 19 leikjum í deild og bikar og fær nú að reyna fyrir sér í Bestu deildinni.
FH endaði í sjötta sæti síðasta haust og gæti Breukelen reynst mikilvæg viðbót við sóknarleik Hafnfirðinga.
Breukelen er sóknarsinnaður miðjumaður að upplagi og getur einnig spilað framar eða aftar á vellinum.
Hún er bandarísk og lék fyrir Penn State í bandaríska háskólaboltanum.