Jón Veigar semur við Þrótt Vogum (Staðfest)

Mynd: Þróttur Vogum

Mynd: Þróttur Vogum
Jón Veigar Kristjánsson er búinn að skrifa undir samning við Þrótt Vogum en hann hefur undanfarin ár verið mikilvægur hlekkur í liði Augnabliks í 3. deildinni.
Jón Veigar er fjölhæfur sóknarmaður og er fenginn til að hjálpa Vogamönnum í toppbaráttu 2. deildar.
Vogamenn enduðu aðeins þremur stigum frá öðru sætinu á síðustu leiktíð, sem hefði veitt þeim þátttökurétt í Lengjudeildinni.
Auk þess að spila fyrir Augnablik hefur Jón Veigar leikið með Njarðvík í 2. deild og háskólanum í San Diego í Bandaríkjunum. Hann tók þátt í úrslitakeppninni í háskólaboltanum og útskrifaðist í fyrra.