Ivo Grbic til Sheffield United (Staðfest)

Ivo Grbic fór í skemmtilega myndatöku í Sheffield.

Mynd: Getty Images

Ivo Grbic fór í skemmtilega myndatöku í Sheffield.

Mynd: Getty Images
Sheffield United hefur keypt króatíska markvörðinn Ivo Grbic frá Atletico Madrid en kaupverðið er ekki gefið upp.
Þessi 28 ára leikmaður var varamarkvörður hjá Atletico en skrifar undir samning til 2027 á Bramall Lane. Hann gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið á morgun þegar það mætir Brighton.
Þessi 28 ára leikmaður var varamarkvörður hjá Atletico en skrifar undir samning til 2027 á Bramall Lane. Hann gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið á morgun þegar það mætir Brighton.
„Það er stórt fyrir alla leikmenn að fara í ensku úrvalsdeildina og ég er hæstánægður með að ganga í raðir Sheffield United. Ég hef spilað í góðum deildum, í Frakklandi og Spáni, og lék í Meistaradeildinni með Lille. Ég lék 15 eða 16 leiki fyrir Atletico á síðasta tímabili, sem er stórt félag. Ég veit að ég er klár í þessa áskorun," segir Grbic.
Grbic kom til Atletico 2020 en náði ekki að vinna byrjunarliðssætið af Jan Oblak sem er talinn einn besti markvörður heims. Grbic lék tólf deildarleiki fyrir Atletico.
Sheffield United er í nær ómögulegri stöðu á botni ensku úrvalsdeildarinnar.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 0 | 0 | 0 |
| 2 | Aston Villa | 0 | 0 | 0 |
| 3 | Bournemouth | 0 | 0 | 0 |
| 4 | Brentford | 0 | 0 | 0 |
| 5 | Brighton | 0 | 0 | 0 |
| 6 | Chelsea | 0 | 0 | 0 |
| 7 | Coventry | 0 | 0 | 0 |
| 8 | Crystal Palace | 0 | 0 | 0 |
| 9 | Everton | 0 | 0 | 0 |
| 10 | Fulham | 0 | 0 | 0 |
| 11 | Hull City | 0 | 0 | 0 |
| 12 | Ipswich Town | 0 | 0 | 0 |
| 13 | Leeds | 0 | 0 | 0 |
| 14 | Liverpool | 0 | 0 | 0 |
| 15 | Manchester City | 0 | 0 | 0 |
| 16 | Manchester Utd | 0 | 0 | 0 |
| 17 | Newcastle | 0 | 0 | 0 |
| 18 | Nott. Forest | 0 | 0 | 0 |
| 18 | West Ham | 38 | -19 | 39 |
| 19 | Burnley | 38 | -37 | 22 |
| 19 | Sunderland | 0 | 0 | 0 |
| 20 | Wolves | 38 | -41 | 20 |
| 20 | Tottenham | 0 | 0 | 0 |