Nemanja Matic til Lyon eftir tap gegn Rennes (Staðfest)

Matic var óhamingjusamur hjá Rennes og nefndu fjölmiðlar að hann væri að íhuga að hætta í fótbolta ef félagið hleypti honum ekki burt.

Mynd: Getty Images

Franska félagið Olympique Lyonnais hefur gengið afleitlega á tímabilinu og er afar óvænt í fallsæti í frönsku deildinni, með 16 stig eftir 19 umferðir.
Lyon tapaði heimaleik gegn Rennes í gærkvöldi þar sem liðið lenti þremur mörkum undir í fyrri hálfleik en lokatölur urðu 2-3.
Í dag staðfesti félagið komu serbneska miðjumannsins Nemanja Matic á tveggja og hálfs árs samningi, en hann kemur einmitt úr röðum Rennes.
Matic gekk til liðs við Rennes síðasta haust en er óhamingjusamur hjá félaginu. Hann stóð sig mjög vel á fyrri hluta tímabils og var meðal bestu leikmanna liðsins, en var tekinn úr hópnum í desember og hætti í kjölfarið að mæta á æfingar.
Matic er 35 ára gamall og hefur meðal annars leikið fyrir Chelsea og Manchester United á farsælum ferli.
Hann er þriðji leikmaðurinn sem Lyon fær til sín í janúar, eftir að félagið krækti í Gift Orban og Malick Fofana.

????????
— Olympique Lyonnais (@OL) January 27, 2024
????°???????? | @NemanjaMatic#Mati?2026 ???? @DamienLGphoto