Fotbolti.net
26.01.24 - 18:01
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Vermeeren til Atlético (Staðfest)

Vermeeren til Atlético (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Atlético Madrid er búið að staðfesta félagsskipti á belgíska undrabarninu Arthur Vermeeren til félagsins.
Vermeeren er 18 ára miðjumaður, sem verður 19 ára í byrjun febrúar, og borgar Atlético í heildina um 20 milljónir evra fyrir táninginn. Hann kemur úr röðum Royal Antwerp, sem heldur 10% af endursölurétti leikmannsins og gæti þénað væna summu á því.

Auk þess að vera lykilmaður í sterku liði Antwerp þá hefur Vermeeren spilað tvo A-landsleiki fyrir Belgíu, eftir að hafa leikið 17 sinnum fyrir yngri landsliðin.

Vermeeren er fjölhæfur og hefur Marc Overmars, yfirmaður fótboltamála hjá Antwerp, líkt honum við spænsku miðjumennina Sergio Busquets, Andrés Iniesta og Xavi sem léku saman á miðju Barcelona á sínum tíma.

Atletico er í fjórða sæti spænsku deildarinnar sem stendur, með 41 stig eftir 20 umferðir. Liðið er tíu stigum á eftir nágrönnum sínum í Real Madrid.

Vermeeren til Atlético (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Alaves000
1Real Sociedad2+46
2Athletic000
2Barcelona2+46
3Atletico Madrid2+44
3Atletico Madrid000
4Girona2+14
4Barcelona000
5Betis000
5Levante2+14
6Celta000
6Real Madrid1+33
7Deportivo000
7Eibar1+13
8Leganes1+13
8Elche000
9Espanyol000
9Valencia1+13
10Getafe000
10Betis2-13
11Espanyol101
11Levante000
12Malaga000
12Sevilla101
13Osasuna000
13Athletic101
14Racing Santander000
14Getafe101
15Deportivo2-31
15Rayo Vallecano000
16Celta2-20
16Real Madrid000
17Malaga2-20
17Mallorca38-1042
17Real Sociedad000
18Sevilla000
18Alaves2-30
19Villarreal2-40
19Valencia000
19Girona38-1641
20Villarreal000
20Oviedo38-3429
20Las Palmas2-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.