Fotbolti.net
27.01.24 - 12:00
Ívan Guðjón Baldursson

Tindastóll fær markahæsta leikmann í sögu háskólans í Kentucky (Staðfest)

Tindastóll fær markahæsta leikmann í sögu háskólans í Kentucky (Staðfest)
Canon

Mynd: Tindastóll

Hertz
Tindastóll er búinn að staðfesta samkomulag við bandaríska framherjann Jordyn Rhodes, sem mun leika með liðinu á komandi leiktíð í Bestu deild kvenna.
Rhodes er gríðarlega öflug og er markahæsti leikmaður í sögu háskólans í Kentucky. Hún hefur borið lið Kentucky á herðum sér undanfarin ár og mun fullkomna spennandi sóknarþríeyki á Sauðárkróki.

Rhodes mun spila í fremstu víglínu, með Aldísi Maríu Jóhannsdóttur og Hugrúnu Pálsdóttur á köntunum.

Jordyn Rhodes hefur skrifað undir samning við Tindastól og spilar með mfl. kvenna í Bestu deildinni á komandi tímabili. Hún tekur við af Murielle Tiernan sem er búin að semja við Fram í Lengjudeildinni.

Tindastóll var í fallbaráttu Bestu deildarinnar í fyrra en bjargaði sér frá falli með tveimur sigrum og einu jafntefli í þremur leikjum í úrslitakeppni neðri hluta deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.