Jón Karlsson tekinn við Sindra (Staðfest)

Mynd: Sindri

Mynd: Sindri
Knattspyrnudeild Sindra hefur ráðið Jón Karlsson sem nýjan þjálfara meistaraflokks en hann er nýfluttur á Höfn í Hornafirði með fjölskyldu sinni.
Jón er fæddur 1983 og á hann 75 keppnisleiki skráða á ferlinum, en þeir síðustu komu í 2. deild karla árið 2008 þegar hann skoraði 4 mörk í 21 leik.
Jón var hjá Val um árabil en lék svo með Neista Djúpavogi í eitt ár áður en hann fór til KV og hélt svo til Hattar. Til gamans má geta að Jón er fæddur og uppalinn á Djúpavogi.
Jón er menntaður lögfræðingur en hefur samhliða störfum á þeim vettvangi fengist við þjálfun, bæði í yngri flokkum sem og meistaraflokki.
„Við hjá Sindra erum spennt fyrir komu Jóns og sumrinu framundan. Liðið samanstendur af ungum efnilegum heimamönnum sem munu taka slaginn í 3. deildinni. Velkominn Jón og áfram Sindri!" segir meðal annars í tilkynningu frá félaginu.
Sindri féll úr 2. deild karla í fyrra og leikur því í 3. deild í sumar.