Vestri missir Söndergaard til Hobro (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Getty Images
Danska félagið Hobro er búið að staðfesta komu Andreas Söndergaard til félagsins frá Vestra. Þetta er skellur fyrir Vestra sem var aðeins nýlega búið að krækja í hinn bráðefnilega Söndergaard.

TENGT EFNI
Vestri missir markvörðinn sinn - „Erfitt fyrir félagið að standa í vegi fyrir honum"
Andreas gat ekki hafnað tækifærinu á að skipta yfir í danska boltann, þar sem Hobro í næstefstu deild og er í baráttu um að komast upp í efstu deild.
Hinn 23 ára gamli Söndergaard hefur meðal annars verið á mála hjá Wolves og Swansea á ferli sínum hingað til en snýr nú aftur til heimalandsins. Söndergaard á 21 leik að baki fyrir yngri landslið Danmerkur en hefur ekki tekist að taka stökkið upp í A-landsliðið þar sem hann hefur vantað spiltíma.
Hann fyllir í skarðið fyrir Jonathan Fischer sem er farinn til Fredrikstad í Noregi.
Vestri er því í leit að nýjum markverði fyrir komandi átök í Bestu deildinni og reyndi við Guy Smit á dögunum, en hann er á leið til KR.
Andreas Søndergaard er ny mand i målet for Hobro IK ????
— Hobro IK (@hikfodbold) January 27, 2024
Læs mere: https://t.co/QlOgBpe0Si#HobroIK #TransferDK pic.twitter.com/x8eg9qgSeb


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð




