Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25149 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR05.02.2024, 12:36

Ariela Lewis og Sigrún Guðmunds í Aftureldingu (Staðfest)

Afturelding tilkynnti á dögunum um komu tveggja leikmanna til félagsins og um framlengingu á einum samningi. Afturelding er að undrbúa sig fyrir komandi átök í Lengjudeildinni. Ariela Lewis er komin til félagsins og leikur með liðinu í sumar. Hún kemur frá Gróttu þar sem hún skoraði 29 mörk í 37 leikjum síðustu tvö tímabil. Þar áður lék Ariela með háskóla liði Alabama State í Bandaríkjunum og að loknum háskóla hélt Ariela frá Bandaríkjunum til Svíþjóðar þar sem hún lék tvö tímabil.

FRÉTTIR05.02.2024, 11:34

Króatískur miðjumaður í Grindavík (Staðfest)

Josip Krznaric er kominn með leikheimild með Lengjudeildarliði Grindavíkur. Krznaric er 31 árs króatískur miðjumaður sem kemur á frjálsri sölu en hann spilaði síðast með NK Krka. Hann hefur spilað í heimalandinu, Slóvakíu, Eistlandi, Austurríki og Slóveníu á sínum ferli. Hann kemur til með að fylla skarð Marko Vardic sem gekk í raðir ÍA.

FRÉTTIR05.02.2024, 11:24

Spænskur varnartengiliður í ÍBV (Staðfest)

ÍBV hefur fengið til sín spænskan miðjumann, Vicente Valor, og er hann kominn með leikheimild með félaginu. Hann gerði tveggja ára samning. ÍBV féll úr Bestu deildinni á síðasta tímabil og eru Hermann Hreiðarsson og hans menn að búa sig undir tímabil í Lengjudeildinni þar sem stefnan er væntanlega sett á að komast beint upp aftur.

FRÉTTIR03.02.2024, 18:39

Vestri fær fyrirliðann frá Fredericia (Staðfest)

Vestri er búinn að krækja sér í nýjan miðvörð sem á að fylla í skarðið sem Gustav Kjeldsen skilur eftir. Gustav sleit hásin og verður því frá keppni í sumar en Jeppe Spliid Gertsen mun taka stöðu hans í hjarta varnarinnar hjá Vestra.

FRÉTTIR03.02.2024, 07:30

Lucas Bergvall til Tottenham (Staðfest)

Sænski landsliðsmaðurinn Lucas Bergvall er genginn til liðs við Tottenham Hotspur frá Djurgården en þetta tilkynnti Lundúnarfélagið seint í gærkvöldi.

FRÉTTIR02.02.2024, 17:48

Benrahma til Lyon og Fornals til Real Betis (Staðfest)

Said Benrahma er kominn á lán frá West Ham til Lyon í Frakklandi og Pablo Fornals hefur verið seldur frá enska félaginu til Real Betis á Spáni fyrir 6,8 milljónir punda. Lyon er með klásúlu um að geta keypt Benrahma, sem er 28 ára Alsíringur, alfarið í sumar.

FRÉTTIR02.02.2024, 13:44

Ari Leifsson til Kolding (Staðfest) - Dreymir um endurkomu í landsliðið

Danska félagið Kolding tilkynnti í dag um komu Ara Leifssonar til félagsins. Ari, sem er 25 ára miðvörður, skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2026. Ari, sem er uppalinn í Fylki, kemur til Kolding frá Strömsgodset þar sem hann hefur verið síðustu fjögur tímabil. Samningur hans við norska félagið rann út og leitaði Ari annað.

FRÉTTIR02.02.2024, 12:11

Davíð Ingvars til Kolding (Staðfest)

Bakvörðurinn Davíð Ingvarsson er kominn í danska B-deildarfélagið Kolding. Hann hefur fengið félagaskipti og Karl Daní­el Magnús­son hjá knattspyrnudeild Breiðabliks staðfestir skipti hans við <a href="https://www.mbl.is/sport/efstadeild/2024/02/02/a_leid_fra_breidablik_til_kolding/" target="_blank">mbl.is</a>.

FRÉTTIR02.02.2024, 09:35

Lorenz Assignon til Burnley á láni - Roberts lánaður til Leeds (Staðfest)

Hægri bakvörðurinn Lorenz Assignon er kominn til Burnley á láni út tímabilið. Asssignon er 23 ára Frakki og kemur frá Rennes þar sem hann hefur leikið 60 leiki. <i>„Ég hafði úr nokkrum liðum að velja en ég spjallaði við stjórann (Vincent Kompany) og vildi strax koma hingað. Þetta er besta deild í heimi og ég vil taka þátt í henni,"</i> segir Assignon. Burnley er í erfiðri stöðu í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni en það var nokkuð um hræringar á leikmannamálum félagsins á gluggadeginum í gær. Annar franskur varnarmaður, miðvörðurinn Maxime Esteve, kom á láni frá Montpellier og fyrr í glugganum hafði sóknarmaðurinn David Datro Fofana komið á láni frá Chelsea.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.