Roma fær Huijsen frá Juventus (Staðfest) - Fær treyju númer 3
AS Roma er búið að krækja í hollenska miðvörðinn Dean Huijsen á lánssamningi sem gildir út tímabilið.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24432 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
AS Roma er búið að krækja í hollenska miðvörðinn Dean Huijsen á lánssamningi sem gildir út tímabilið.
Þrír uppaldir Þórsarar eru búnir að skrifa undir nýja samninga við félagið sitt sem gilda næstu þrjú árin.
Eva Ýr Helgadóttir er gengin í raðir Selfoss frá Aftureldingu en þetta kemur fram í tilkynningu frá Selfyssingum í dag.
FH-ingar hefja árið með pomp og prakti en í dag var Böðvar Böðvarsson kynntur sem nýr leikmaður félagsins og snýr hann því aftur heim eftir sex ára dvöl erlendis.
<p>Gígja Valgerður Harðardóttir er gengin til liðs við Víking frá KR og skrifar undir tveggja ára samning.</p>
KV tilkynnti í dag að samkomulag væri í höfn um að Orri Fannar Þórisson taki við sem nýr þjálfari liðsins. Viktor Bjarki Arnarsson þjálfaði liðið seinni hluta síðasta tímabils og tekur Orri Fannar við af honum. KV verður í 3. deild í sumar eftir að hafa fallið úr 2. deild síðasta sumar.
Tajon Buchanan hefur gengið í raðir Inter frá Club Brugge fyrir 7 milljónir evra.
Luke Williams hefur verið ráðinn nýr stjóri Swansea í Championship-deildinni á Englandi eftir langa þjálfaraleit.
Sheffield United hefur staðfest að félagið sé búið að krækja í sóknarmanninn Ben Brereton Díaz á láni frá Villarreal á Spáni.
Ingimar Torbjörnsson Stöle hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild KA og er nú samningsbundinn út sumarið 2025.
Zack Steffen er genginn til liðs við Colorado Rapids í MLS deildinni frá Manchester City. Hann gerir þriggja ára samning með möguleika á framlenginu um eitt ár til viðbótar.
<p>Eydís Arna Hallgrímsdóttir er alfarið gengin til liðs við Fram og skrifar undir tveggja ára samning. Hún hefur spilað í Fram treyjunni undanfarin tvö ár á láni frá FH.</p>
Anton Logi Lúðvíksson er formlega orðinn leikmaður Haugesund en hann hefur skrifað undir fjögurra ára samning við norska úrvalsdeildarfélagið. Hann er því aftur kominn undir stjórn Óskars Hrafns Þorvaldssonar sem þjálfaði hann hjá Breiðabliki. Anton er annar Íslendingurinn sem Óskar fær til Haugesund en Hlynur Freyr Karlsson kom til félagsins frá Val nýlega.
Varnarmaðurinn Kristófer Reyes hefur samið við Krabi FC í Tælandi. Samningurinn gildir þangað til í vor.
Íslandsmeistarar Vals halda áfram að þétta raðirnar fyrir komandi tímabil í Bestu deildinni. Liðið er að styrkja sig enn frekar og nú með bandarískum leikmanni. Hailey Allende Whitaker er hægri bakvörður frá Birmingham í Alabama. Hún lék fyrir Auburn háskólann þar sem hún er næst leikjahæsti leikmaður liðsins frá upphafi með 94 leiki. Þaðan útskrifaðist hún árið 2022 og kemur til Vals frá Åland United í Finnlandi. Hún lék fjórtán leiki með Åland United á síðasta tímabili og endaði liðið í þriðja sæti finnsku deildarinnar.
Freyr Alexandersson er hættur þjálfun Lyngby en þetta kom fyrst fram hjá <i>BT</i>. <i>Bold</i> segir að Freyr sé að taka við Kortrijk í belgísku úrvalsdeildinni. Freyr hefur vakið mikla athygli fyrir árangur sinn hjá Lyngby, hann kom liðinu upp í efstu deild og náði að halda því þar með ótrúlegum hætti á síðasta tímabili eftir að staðan var svört. Liðið siglir nú lygnan sjó í deildinni. Önnur félög í Danmörku höfðu sýnt Frey áhuga og hann verið orðaður við Viborg og OB. Samkvæmt dönskum fjölmiðlum er hann að taka við Kortrijk sem situr í neðsta sæti belgísku deildarinnar með tíu stig eftir tuttugu umferðir. Forráðamenn félagsins vonast væntanlega til þess að hann framkvæmi aðra eins björgun og hann gerði með Lyngby.
Ipswich hefur fengið vængmanninn Jeremy Sarmiento lánaðan frá Brighton út tímabilið. Ipswich situr í 2. sæti Championship-deildarinnar. Ekvadorski landsliðsmaðurinn lék á láni hjá West Brom fyrri hluta tímabilsins og skoraði tvisvar í 21 leik. Brighton kallaði hann aftur til baka þann 1. janúar og hefur nú lánað hann til Ipswich.
Ólafur Karl Finsen hefur lagt skóna á hilluna en hann tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum í dag.
Helena Ósk Hálfdánardóttir er gengin í raðir Vals en hún kemur til félagsins eftir að hafa síðast spilað með Breiðabliki. Hún skrifar undir tveggja ára samning við Íslandsmeistarana en samkvæmt heimildum Fótbolta.net sýndu nýliðar Víking henni einnig áhuga.
<p>Borja Lopez Laguna hefur framlengt samning sinn við Dalvík/Reyni og mun leika með liðinu í Lengjudeildinni næsta sumar.</p> <p>Borja er 29 ára gamall og hefur leikið með Dalvík/Reyni frá árinu 2019. Hann hefur leikið 115 leiki fyrir félagið og skorað 57 mörk.</p>