Fotbolti.net
05.01.24 - 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Orri Fannar ráðinn þjálfari KV (Staðfest)

Orri Fannar ráðinn þjálfari KV (Staðfest)
Canon

Mynd: KV

KV tilkynnti í dag að samkomulag væri í höfn um að Orri Fannar Þórisson taki við sem nýr þjálfari liðsins.

Viktor Bjarki Arnarsson þjálfaði liðið seinni hluta síðasta tímabils og tekur Orri Fannar við af honum.

KV verður í 3. deild í sumar eftir að hafa fallið úr 2. deild síðasta sumar.
„Orri þekkir KV inn og út en bróðir hans er Einar Már Þórisson, einn af leikjahæstu og bestu leikmönnum í sögu félagsins.

Við bindum miklar vonir við Orra og hlökkum til að sjá hann stíga næstu skref í þjálfaraboxinu,"
segir í tilkynningu KV.

Orri er fæddur árið 1996 og á leiki með KV tímabilin 2016, 2017, 2018 og 2020. Hann lék einn leik með KV í Lengjubikarnum síðasta vetur.

Hann þjálfaði lið Kríu á síðasta tímabili og kom liðinu upp úr 5. deildinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.