Fotbolti.net
06.01.24 - 16:01
Brynjar Ingi Erluson

Eva Ýr í Selfoss (Staðfest)

Eva Ýr í Selfoss (Staðfest)
Canon

Mynd: Hrefna Morthens

Hertz
Eva Ýr Helgadóttir er gengin í raðir Selfoss frá Aftureldingu en þetta kemur fram í tilkynningu frá Selfyssingum í dag.
Eva er 27 ára markvörður sem spilaði alla leiki Aftureldingar síðasta sumar.

Áður spilaði hún með Fjölni, Fylki og ÍR en hún á samtals 125 leiki í tveimur efstu deildunum.

„Það er mikið fagnaðarefni að hafa nælt í Evu. Reynsla hennar mun hjálpa ungu leikmönnunum okkar að þroskast í rétta átt. Hún er ekki bara með mikla reynslu af bæði efstu deild og 1. deild heldur hefur hún verið að mínu mati einn besti markvörður landsins undanfarin ár. Núna erum við með tvo alvöru íslenska markmenn sem munu hjálpast að við að gera okkur samkeppnishæf á ný,“ sagði Björn Sigurbjörnsson þjálfari Selfoss.

Selfoss mun spila í Lengjudeildinni í ár eftir að hafa fallið úr Bestu deildinni síðasta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.