Anton Logi kynntur hjá Haugesund (Staðfest)

Anton Logi er kominn í Haugesund.

Mynd: Haugesund

Anton Logi er kominn í Haugesund.

Mynd: Haugesund
Anton Logi Lúðvíksson er formlega orðinn leikmaður Haugesund en hann hefur skrifað undir fjögurra ára samning við norska úrvalsdeildarfélagið. Hann er því aftur kominn undir stjórn Óskars Hrafns Þorvaldssonar sem þjálfaði hann hjá Breiðabliki.
Anton er annar Íslendingurinn sem Óskar fær til Haugesund en Hlynur Freyr Karlsson kom til félagsins frá Val nýlega.

„Það skipti miklu máli að Óskar er hérna því ég þekki hann og hans hugmyndafræði vel frá Breiðabliki," segir þessi tvítugi miðjumaður við heimasíðu Haugesund.
„Ég veit hvað ég fæ frá honum sem þjálfara og hann veit hvað hann fær frá mér. Hann vill spila skemmtilegan fótbolta, vill sækja og stýra leikjum. Það var mikilvægur þáttur í ákvörðun minni."
Anton og Hlynur þekkjast vel en þeir léku saman í yngri flokkum Breiðabliks á sínum tíma. Þeir eru báðir á leið til Bandaríkjanna í janúarverkefni íslenska landsliðsins sem er að fara að spila tvo vináttulandsleiki.

Anton Logi er keyptur frá Breiðabliki.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð