Fotbolti.net
05.01.24 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Zack Steffen til Colorado Rapids (Staðfest)

Zack Steffen til Colorado Rapids (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Zack Steffen er genginn til liðs við Colorado Rapids í MLS deildinni frá Manchester City. Hann gerir þriggja ára samning með möguleika á framlenginu um eitt ár til viðbótar.

Steffen gekk til liðs við Man City frá Columbus Crew árið 2019 eftir að hafa verið valinn besti markvörðurinn í MLS deildinni árið áður.

Hann var strax lánaður til Dusseldorf og var svo í herbúðum City næstu tvö tímabil og spilaði aðallega í bikarkeppnunum. Hann var síðan lánaður til Middlesbrough á síðustu leiktíð þar sem hann lék 42 leiki í Championship deildinni.

„Zack er topp markmaður með mikla reynslu á heimsvísu og í MLS deildinni. Hans ótrúlega hæfni og reynsla er verðmæt viðbót í hópinn okkar," sagði Pádraig Smith forseti Rapids.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.