Ingimar Stöle framlengir við KA (Staðfest) - „Frábærar fréttir"

Ingimar Torbjörnsson Stöle.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingimar Torbjörnsson Stöle.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingimar Torbjörnsson Stöle hefur framlengt samning sinn við knattspyrnudeild KA og er nú samningsbundinn út sumarið 2025.
„Eru þetta frábærar fréttir en Ingimar sem er 19 ára gamall sló í gegn á síðustu leiktíð og var valinn efnilegasti leikmaður KA liðsins," segir í tilkynningu KA.
Ingimar gekk í raðir KA í janúar mánuði á nýliðnu ári en hann kom frá Viking Stavanger í Noregi en Ingimar hafði búið í Noregi alla sína tíð fyrir komuna norður.
Á sinni fyrstu leiktíð með KA lék hann alls 23 leiki, þar á meðal þrjá í Evrópu.
„Það eru afar jákvæðar fréttir að við höldum Ingimar áfram innan okkar raða en undanfarin ár hefur Ingimar verið viðloðandi yngri landslið Íslands og ljóst að það verður gríðarlega spennandi að fylgjast með framgöngu hans á næstu árum."
Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, sagði eftirfarandi um samningsmál Ingimars í október:
„Við erum að skoða málin með honum núna, snýst um skólamál og annað fyrir hann líka. Hann var í fjarnámi frá skóla í Noregi og það er verið að fara yfir þessa hluti. Það skýrist vonandi á næstu dögum. Þetta snýst um að námið hans samræmist því að spila fótbolta á Íslandi."