Roma fær Huijsen frá Juventus (Staðfest) - Fær treyju númer 3

Huijsen hefur verið mikilvægur hlekkur upp yngri landslið Hollands.

Mynd: EPA

AS Roma er búið að krækja í hollenska miðvörðinn Dean Huijsen á lánssamningi sem gildir út tímabilið.
Huijsen kemur úr röðum Juventus en hann er aðeins 18 ára gamall og þykir gríðarlega mikið efni.
„Þetta er einn af hæfileikaríkustu miðvörðum Evrópu. Huijsen mun verða að topp leikmanni í framtíðinni og við getum hjálpað honum að komast þangað. Við vildum kaupa hann en þurftum að fá hann á láni útaf fjármálareglunum," sagði José Mourinho, þjálfari Roma.
Huijsen á aðeins einn leik að baki fyrir meistaraflokk Juventus, þegar hann fékk 12 mínútur í 0-1 sigri gegn AC Milan í seinni hluta október.
Hann fær treyju númer 3 hjá Roma, en félagið hefur verið í miklu basli með varnarlínuna á tímabilinu vegna mikilla meiðslavandræða. Núna er Evan N'Dicka farinn frá Ítalíu til að keppa á Afríkumótinu og gæti Huijsen því fengið spiltíma næstu vikurnar.

???? ???????????? ???????????????????????????? | Dean Huijsen ????
— AS Roma English (@ASRomaEN) January 6, 2024
Welcome to the Giallorossi! ????
#ASRoma pic.twitter.com/UEHOWfLq6p