Fotbolti.net
05.01.24 - 15:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Luke Williams tekur við Swansea (Staðfest)

Luke Williams.

Luke Williams.

Canon

Mynd: Swansea

Luke Williams hefur verið ráðinn nýr stjóri Swansea í Championship-deildinni á Englandi eftir langa þjálfaraleit.
Williams skrifar undir þriggja og hálfs árs samning við Swansea en hann tekur við liðinu af Michael Duff sem var rekinn frá félaginu í byrjun desember.

Williams þekkir vel til hjá Swansea eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari Russell Martin frá 2021 til 2022.

Að undanförnu hefur hann gert fína hluti með Notts County. Hann kom liðinu upp úr ensku utandeildinni á síðustu leiktíð og er Notts County núna í fimmta sæti í D-deildinni.

Hann stýrir Swansea í fyrsta sinn gegn Morecambe í enska FA-bikarnum á morgun. Liðið er sem stendur í 16. sæti Championship-deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.