Helena Ósk í Val (Staðfest)

Helena Ósk og Pétur Pétursson, þjálfari Vals.

Mynd: Valur

Helena Ósk Hálfdánardóttir er gengin í raðir Vals en hún kemur til félagsins eftir að hafa síðast spilað með Breiðabliki.
Hún skrifar undir tveggja ára samning við Íslandsmeistarana en samkvæmt heimildum Fótbolta.net sýndu nýliðar Víking henni einnig áhuga.

TENGT EFNI
Framkvæmdastjóri Blika: Getur einhver keppt við fasteignafélagið um laun?
Helena Ósk hefur spilað 135 leiki í meistaraflokki og skorað í þeim 26 mörk og þá hefur hún leikið 23 leiki og skorað fjögur mörk fyrir yngri landslið Íslands, en Helena missti af síðustu leiktíð eftir að hún sleit krossband.
Ásamt því að leika með Breiðabliki, þá hefur hún einnig leikið með FH og Fylki á sínum ferli.
„Helena er gríðarlega öflugur leikmaður sem mun styrkja hópinn okkar fyrir komandi átök. Hún hefur fyrir löngu sannað sig í efstu deild hér á landi og með henni kemur kraftur og metnaður sem við viljum sjá. Við höfum misst marga leikmenn og þurfum að bæta í okkar hóp til að sækja titilinn að nýju – Helena er svo sannarlega góð viðbót," segir Pétur Pétursson, þjálfari Vals.
Helena er annar leikmaðurinn sem Valur semur við á skömmum tíma en Katie Cousins skrifaði undir hjá félaginu um miðjan desember.