Fotbolti.net
05.01.24 - 13:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Brereton Diaz í Sheffield United (Staðfest)

Ben Brereton Díaz.

Ben Brereton Díaz.

Canon

Mynd: Getty Images

Sheffield United hefur staðfest að félagið sé búið að krækja í sóknarmanninn Ben Brereton Díaz á láni frá Villarreal á Spáni.
Diaz hefur aðeins byrjað tvo leiki fyrir Villarreal eftir að hann skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið síðasta sumar. Hann kom þangað á frjálsri sölu frá Blackburn.

„Um leið og ég vissi að það væri áhugi þá talaði við nokkra aðila og við kláruðum þetta fljótt," sagði sóknarmaðurinn.

„Ég var ekki að spila mikið á Spáni og mér var sagt að ég gæti farið á láni. Það er gott að koma aftur til Englands og í svona frábært félag."

Díaz, sem á 27 A-landsleiki fyrir Síle, á að reyna að hjálpa Sheffield United að forðast fall en liðið er sem stendur á botni ensku úrvalsdeildarinnra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.