Böddi í FH (Staðfest)

Böddi Löpp er mættur aftur í FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Böddi Löpp er mættur aftur í FH

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH-ingar hefja árið með pomp og prakti en í dag var Böðvar Böðvarsson kynntur sem nýr leikmaður félagsins og snýr hann því aftur heim eftir sex ára dvöl erlendis.
Böðvar eða Böddi Löpp eins og hann er kallaður er uppalinn í FH og spilaði með félaginu til 2018.
Á þeim fimm tímabilum sem hann spilaði með meistaraflokki FH kom hann við sögu í 117 leikjum og gerði eitt mark, en markið kom í 2-2 jafntefli gegn Fylki árið 2015.
Eftir frábæra spilamennsku á Íslandi var hann keyptur til Jagiellonia Biyalistok í Póllandi. Hann lék þar í tvö ár áður en hann fór til Svíþjóðar þar sem hann spilaði fyrir bæði Helsingborg og Trelleborg.
Böðvar varð samningslaus eftir þetta tímabil og ákvað að snúa aftur heim og kom því ekkert annað til greina en að fara aftur heim í FH.
FH-ingar kynntu Böðvar á Facebook, en skemmtilegt myndband af undirskriftinni má sjá hér fyrir neðan.
Hann greindi frá því í myndbandinu að samningurinn væri til fjögurra ára.