Fotbolti.net
05.01.24 - 15:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Tajon Buchanan í Inter (Staðfest) - Byrjaði í háskólaboltanum

Mættur til Inter.

Mættur til Inter.

Canon

Mynd: Inter

Tajon Buchanan hefur gengið í raðir Inter frá Club Brugge fyrir 7 milljónir evra.
Buchanan er kanadískur landsliðsmaður sem spilar yfirleitt á hægri vængnum en hann getur einnig leyst það að spila sem bakvörður. Hann getur í raun spilað báðum megin á vellinum og er mjög fjölhæfur.

Juan Cuadrado hefur átt við erfið meiðsli að stríða og Inter ákvað því að sækja Buchanan sem er 24 ára gamall. Manchester City hafði einnig sýnt Buchanan áhuga en Inter náði að landa honum.

„Hann er fjölhæfur leikmaður sem er tilbúinn að leggja mikið á sig. Hann er búinn að vaxa mikið síðustu ár og er tilbúinn að vera fyrsti Kanadamaðurinn til að spila í Serie A," segir á heimasíðu Inter.

Buchanan byrjaði í háskólaboltanum í Bandaríkjunum með Syracuse Orange en fór svo í MLS-deildina og var þar hjá New England Revolution. Hann hefur síðustu árin leikið vel með Club Brugge í Belgíu og fær núna stórt skref.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.