Aron, Ingimar og Ragnar framlengja við Þór (Staðfest)

Aron Ingi er mikilvægur hlekkur í liði Þórs.

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Þrír uppaldir Þórsarar eru búnir að skrifa undir nýja samninga við félagið sitt sem gilda næstu þrjú árin.
Aron Ingi Magnússon er fæddur 2004 en á nú þegar 51 leik að baki fyrir meistaraflokk. Hann skoraði 7 mörk í 25 leikjum í deild og bikar í fyrra, en Aron Ingi þykir mikið efni og á hann fjóra landsleiki að baki fyrir U19 lið Íslands.
Aron fór upp í gegnum alla yngri flokka Þórs og var lánaður til Ítalíu þar sem hann lék með unglingaliði Venezia leiktíðina 2022/23.
Ragnar Óli Ragnarsson, fæddur 2003, er með 49 leiki að baki fyrir meistaraflokk Þórs og var fyrirliði 2. flokks sumarið 2022. Hann er einnig búinn að skrifa undir samning.
Að lokum er Ingimar Arnar Kristjánsson búinn að gera samning en hann er fæddur 2005 og er því enn gjaldgengur í 2. flokk.
Ingimar á 32 leiki að baki fyrir meistaraflokk en hann er meðal markahæstu leikmanna landsins í 2. flokki, þar sem hann skoraði 21 mark í 16 leikjum í fyrrasumar.