Fotbolti.net
05.01.24 - 18:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Gígja Valgerður í Víking (Staðfest)

Gígja Valgerður í Víking (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

Gígja Valgerður Harðardóttir er gengin til liðs við Víking frá KR og skrifar undir tveggja ára samning.

Hún mun því taka þátt í ævintýri liðsins í Bestu deildinni næsta sumar eftir að liðið vann Lengjudeildina síðasta sumar auk þess að vinna Mjólkurbikarinn.

Gígja Valgerður þekkir vel til í Víkinni en hún lék með sameiginlegu liði HK/Víkings frá 2016-2019.

Hún er reynslumikill varnarmaður en hún hefur leikið 337 leiki í meistaraflokki. Hún var í liði Þórs/KA sem varð Íslandsmeistari árið 2012

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.