Kristófer Reyes til Tælands (Staðfest)

Eftir undirskrift.

Mynd: Krabi FC

Eftir undirskrift.

Mynd: Krabi FC
Varnarmaðurinn Kristófer Reyes hefur samið við Krabi FC í Tælandi. Samningurinn gildir þangað til í vor.
Kristófer er miðvörður sem uppalinn er á Snæfellsnesi og er bæði með íslenskan og filippeyskan ríkisborgararétt.
Hann steig sín fyrstu skref í meistaraflokki Víkings Ólafsvíkur sumarið 2014 en fyrir sumarið 2016 skipti hann í Fram. Þremur árum síðar sneri hann svo aftur til baka til Ólafsvíkur og var þar í tvö tímabil áður en Fjölnir fékk hann í sínar raðir fyrir tímabilið 2021.
Svo fór hann í Kórdrengi og lék þrettán deildarleiki sumarið 2022 og skoraði tvö mörk.
Í fyrra lék hann með Ægi í Lengjudeildinni og Þrótti Vogum í 2. deild. Núna heldur hann á vit ævintýranna í nýju landi.
Krabi er sem stendur á botni B-deildarinnar í Tælandi en Kristófer á að hjálpa liðinu að komast upp af fallsvæðinu. Liðið er sem stendur sex stigum frá því.