Fotbolti.net
04.01.24 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Valur krækir í bandarískan bakvörð (Staðfest)

Valur krækir í bandarískan bakvörð (Staðfest)
Canon

Mynd: Valur

Hertz
Íslandsmeistarar Vals halda áfram að þétta raðirnar fyrir komandi tímabil í Bestu deildinni. Liðið er að styrkja sig enn frekar og nú með bandarískum leikmanni.

Hailey Allende Whitaker er hægri bakvörður frá Birmingham í Alabama. Hún lék fyrir Auburn háskólann þar sem hún er næst leikjahæsti leikmaður liðsins frá upphafi með 94 leiki. Þaðan útskrifaðist hún árið 2022 og kemur til Vals frá Åland United í Finnlandi.

Hún lék fjórtán leiki með Åland United á síðasta tímabili og endaði liðið í þriðja sæti finnsku deildarinnar.
Hailey er þriðji leikmaðurinn sem Valur kynnir til leiks á skömmum tíma en áður hafði verið samið við Katie Cousins og Helenu Ósk Hálfdánardóttur.

Komnar
Hailey Allende Whitaker frá Finnlandi
Helena Ósk Hálfdánardóttir frá Breiðabliki
Katie Cousins frá Þrótti R.
Arna Eiríksdóttir frá FH (var á láni)
Bryndís Eiríksdóttir frá HK (var á láni)
Kolbrá Una Kristinsdóttir frá Gróttu (var á láni)
Lillý Rut Hlynsdóttir frá FH (var á láni)
Snæfríður Eva Eiríksdóttir frá Aftureldingu (var á láni)

Farnar
Ásdís Karen Halldórsdóttir til Noregs
Bryndís Arna Níelsdóttir til Svíþjóðar
Þórdís Elva Ágústsdóttir til Svíþjóðar
Haley Berg til Tyrklands
Hildur Björk Búadóttir til Hollands
Birta Guðlaugsdóttir til Víkings

Samningslausar
Lára Kristín Pedersen
Rebekka Sverrisdóttir
Hanna Kallmaier
Laura Frank
Ída Marín Hermannsdóttir
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.