Fotbolti.net
05.01.24 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Eydís Arna skiptir alfarið í Fram (Staðfest) - Sylvía framlengir

Eydís Arna skiptir alfarið í Fram (Staðfest) - Sylvía framlengir
Canon

Mynd: Fram

Hertz

Eydís Arna Hallgrímsdóttir er alfarið gengin til liðs við Fram og skrifar undir tveggja ára samning. Hún hefur spilað í Fram treyjunni undanfarin tvö ár á láni frá FH.

Hún er aðeins 19 ára gömul og getur leyst ýmsar stöður aftast á vellinum.

Eydís lék með liðinu seinni hluta tímabilsins 2022 í 2. deild þar sem liðið tryggði sér sæti í Lengjudeildinni en hún meiddist illa í fyrsta leik síðasta sumar og gat því lítið tekið þátt.

„Nú er hún hinsvegar orðin fullkomlega heil heilsu og klár í slaginn, sem er frábært bæði fyrir hana sjálfa og Fram. Við hlökkum mikið til að sjá Eydísi blómstra í bláu treyjunni og fögnum því mikið að fá hana til liðs við félagið," segir í tilkynningu frá félaginu.

Þá skrifaði Sylvía Birgisdóttir undir nýjan samning við félagið sem gildir út tímabilið 2026. Hún gekk til liðs við félagið frá Stjörnunni og lék 14 leiki með liðinu í Lengjudeildinni.

„Það er mjög sterkt fyrir félagið að Sylvía verði áfram í herbúðum liðsins. Hún hefur smellpassað inn í hópinn, er góður leikmaður og frábær karakter," segir í tilkynningu frá félaginu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.