Celta krækti í Douvikas og Bamba (Staðfest)

Spænska félagið Celta Vigo var að ganga frá kaupum á gríska framherjanum Anastasios Douvikas, sem er 24 ára gamall og kemur úr röðum FC Utrecht í Hollandi.

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24444 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Spænska félagið Celta Vigo var að ganga frá kaupum á gríska framherjanum Anastasios Douvikas, sem er 24 ára gamall og kemur úr röðum FC Utrecht í Hollandi.

AS Mónakó er búið að staðfesta félagsskipti Folarin Balogun til félagsins frá Arsenal.

Hollenska stórveldið Ajax er búið að bæta tíu leikmönnum við sig í sumar eftir mikið vonbrigðatímabil á síðustu leiktíð, þar sem liðið endaði í þriðja sæti hollensku deildarinnar - þrettán stigum eftir toppliði Feyenoord.

Ítalska stórveldið Inter er búið að staðfesta félagsskipti Benjamin Pavard frá Þýskalandsmeisturum FC Bayern.

Þýski markvörðurinn Steven Benda er fimmti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Fulham í sumar.

Það er mikið umbreytingasumar í gangi hjá fyrrum Evrópudeildarmeisturum Eintracht Frankfurt, sem er búið að missa tvo lykilmenn á frjálsri sölu auk þess að selja aðra tvo lykilmenn frá sér.

Kvennalið Brighton & Hove Albion er búið að staðfesta félagsskipti Maríu Þórisdóttur frá Manchester United.

Danska úrvalsdeildarfélagið Lyngby hefur tryggt sér varnarmanninn Marc Muniesa sem var samherji Arons Einars Gunnarssonar hjá Al-Arabi í Katar. Muniesa er 31 árs og kom upp úr unglingastarfi Barcelona og lék tvo leiki fyrir aðallið félagsins áður en hann hélt til Stoke City þar sem hann var 2013-2018.
Leeds United hefur fengið bakvörðinn Djed Spence lánaðan frá Tottenham út tímabilið. Þessi 23 ára leikmaður kom í gegnum akademíu Fulham áður en hann gekk í raðir Middlesbrough þar sem hann lék 70 leiki. Hann hjálpaði svo Nottingham Forest að vinna sæti í ensku úrvalsdeildinni þegar hann var á láni hjá félaginu 2021-22. Spence gekk í raðir Tottenham í fyrra fyrir 20 milljónir punda en lék aðeins sex leiki, alla sem varamaður, áður en hann fór á láni til Rennes í janúar. Leeds er með fimm stig eftir fyrstu fjórar umferðir Championship-deildarinnar en liðið féll úr úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Í gær sló Salford City lið Leeds út úr deildabikarnum.
Ágúst Orri Þorsteinsson er búinn að gangast undir læknisskoðun og skrifa undir þriggja ára samning við ítalska félagið Genoa sem kaupir hann frá Breiðabliki. Ágúst er átján ára vængmaður, fæddur árið 2005, sem hefur fengið hlutverk í liði Breiðabliks í sumar.
Danski landsliðsmaðurinn Jesper Lindström hefur verið keyptur til Ítalíumeistara Napoli, frá Eintracht Frankfurt. Hann fer reyndar í fyrstu á lánssamningi fyrir 5 milljónir evra en Napoli skuldbindur sig til að kaupa hann fyrir 20 milljónir. Danska félagið Bröndby, fyrrum félag Lindström, fær 15% af kaupverðinu.

Spænski varnarmaðurinn Laia Codina er gengin til liðs við Arsenal frá Barcelona.

Víkingur R. 4 - 2 Fylkir
1-0 Nadía Atladóttir ('17 )
1-1 Eva Rut Ásþórsdóttir ('56 )
2-1 Nadía Atladóttir ('60 )
3-1 Linda Líf Boama ('71 )
3-2 Eva Rut Ásþórsdóttir ('76 )
4-2 Sigdís Eva Bárðardóttir ('81 )
Lestu um leikinn

Hinn 19 ára gamli Carlos Baleba er genginn til liðs við Brighton frá Lille.

Goncalo Guedes verður áfram hjá Benfica en hann er farinn aftur til Portúgals frá Wolves. Hann mun leika með Benfica út þessa leiktíð á láni.

Everton hefur gengið frá kaupum á sóknarmanninum Beto en hann kemur til félagsins frá Udinese á Ítalíu.
Belgíski hægri bakvörðurinn Timothy Castagne er kominn til Fulham frá Leicester. Hann hefur skrifað undir samning til 2027, með möguleika á framlengingu um eitt ár til viðbótar. „Mér líður mjög vel. Þetta hefur verið langur gluggi en loksins er ég mættur hingað og er ánægður með að vera hér," segir þessi 27 ára leikmaður.
Knattspyrnudeild Breiðabliks hefur náð samkomulagi við Ásmund Arnarsson, þjálfara kvennaliðsins, að hann láti af störfum en þetta kemur fram í tilkynningu í dag.
Hollenska félagið Willem II hefur gengið frá kaupum á íslenska vinstri bakverðinum Rúnari Þór Sigurgeirssyni frá sænska félaginu Öster. Rúnar Þór er Keflvíkingur sem fór til Öster eftir síðasta tímabil með Keflavík. Hann kom vel inn í hlutina hjá Öster, var í stóru hlutverki og vakti áhuga félaga í efstu deild Svíþjóðar. Í síðustu viku var svo vakin athygli á því að Willem II, sem er í næst efstu deild Hollands, hefði boðið oftar en einu sinni í leikmanninn. Rúnar er 23 ára og á hann að baki tvo A-landsleiki. Hann byrjaði sextán leiki með Öster í sænsku B-deildinni, skoraði eitt mark og lagði upp tvö. Á heimasíðu Öster segir að um eina stærstu sölu í sögu félagsins sé að ræða. „Við þökkum Rúnari fyrir tíma hans hjá félaginu og óskum honum alls hins besta í framtíðinni. Við höfum styrkt bakvarðarstöðuna í glugganum og erum að vinna í því að styrkja hópinn enn frekar áður en glugginn lokar á fimmtudag," segir Vito Stavljanin sem er yfirmaður íþróttamála hjá Öster. Öster keypti Þorra Mar Þórisson frá KA í glugganum og getur hann spilað báðar bakvarðastöðurnar. Öster er sem stendur í fjórða sæti Superettunnar. Á heimasíðu Willem II er tekið fram að skrifi undir samning út tímabilið 2025/26. „Fyrir mér er Willem II kjörið skref fyrir mig. Hollenskur fótbolti er með sterkt orðspor og passar vel við minn leikstíl. Ég er varnarmaður, en ég vil líka sýna mig fram á við. Það er mikil ástríða og orka í mínum leik. Ég veit hvaða leikur er næsta sunnuda og ég er mjög spenntur fyrir nágrannaslagnum!" segir Rúnar.
Enska þjálfaranum Dean Holden var í gær sagt upp störfum hjá enska C-deildarfélaginu Charlton Athletic.