Maria Þórisdóttir komin til Brighton (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images

Kvennalið Brighton & Hove Albion er búið að staðfesta félagsskipti Maríu Þórisdóttur frá Manchester United.
María er þrítugur varnarmaður með 66 landsleiki að baki fyrir Noreg, en hún hefur verið á mála hjá Man Utd síðustu tvö ár eftir fjögur ár hjá Chelsea þar á undan.
Maria er ekki með byrjunarliðssæti í sterku liði Rauðu djöflanna og mun nú reyna fyrir sér hjá nýju félagi.
Man Utd endaði í öðru sæti ensku deildarinnar á síðustu leiktíð, aðeins tveimur stigum eftir Chelsea. Liðið fékk 56 stig úr 22 umferðum, með 18 sigra, en það dugði ekki til. Brighton endaði í næstneðsta sæti með 16 stig, fimm stigum fyrir ofan Reading sem féll.


Mynd: Getty Images





