Fotbolti.net
30.08.23 - 19:50
Ívan Guðjón Baldursson

Pavard kominn til Inter (Staðfest) - Chalobah til Bayern?

Pavard kominn til Inter (Staðfest) - Chalobah til Bayern?
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska stórveldið Inter er búið að staðfesta félagsskipti Benjamin Pavard frá Þýskalandsmeisturum FC Bayern.

Pavard er 27 ára gamall varnarmaður sem getur ýmist leikið sem miðvörður eða hægri bakvörður.

Hjá Inter verður hann vafalaust notaður sem sókndjarfur miðvörður í ljósi þess að Juan Cuadrado og Denzel Dumfries deila vængbakvarðarstöðunni í 3-5-2 leikkerfi Simone Inzaghi.

Inter er talið borga rúmlega 30 milljónir evra fyrir Pavard sem átti aðeins eitt ár eftir af samningi hjá Bayern.

Pavard vann HM með Frakklandi 2018 og endaði í öðru sæti í Katar 2022, auk þess að hafa unnið ógrynni titla með Bayern.

Þýskalandsmeistararnir eru að klára félagsskipti Trevoh Chalobah frá Chelsea en þeir höfðu einnig sýnt Armel Bella-Kotchap hjá Southampton mikinn áhuga. Bella-Kotchap gæti endað hjá Borussia Dortmund í staðinn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.