Mikautadze sá tíundi sem Ajax fær í sumar (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: Ajax


Mynd: EPA
Hollenska stórveldið Ajax er búið að bæta tíu leikmönnum við sig í sumar eftir mikið vonbrigðatímabil á síðustu leiktíð, þar sem liðið endaði í þriðja sæti hollensku deildarinnar - þrettán stigum eftir toppliði Feyenoord.
Félagið er búið að selja leikmenn fyrir mikinn pening í sumar, þar sem Mohammed Kudus, Jurriën Timber, Edson Álvarez og Calvin Bassey eru farnir í ensku úrvalsdeildina.
Til að fylla í skarðið hafa ýmsir leikmenn verið keyptir, en sá dýrasti er króatíski miðvörðurinn Josip Sutalo. Hann er 23 ára landsliðsmaður Króatíu og kemur úr röðum Dinamo Zagreb fyrir rúmlega 20 milljónir evra.
Ajax var þá að kynna framherjann fjölhæfa Georges Mikautadze til leiks sem kemur fyrir rúmlega 16 milljónir evra. Mikautadze er 22 ára gamall Georgíumaður með 16 landsleiki að baki, en hann er keyptur til félagsins frá franska félaginu Metz sem komst upp úr B-deildinni þar í landi á síðustu leiktíð.
Mikautadze kom að 33 mörkum í 40 leikjum með Metz á síðustu leiktíð og hefur nú þegar skorað tvö og gefið eina stoðsendingu í þremur leikjum í efstu deild franska boltans.
Ajax borgar þá um 14 milljónir fyrir Carlos Forbs, 19 ára kantmann sem kemur úr akademíu Manchester City, sem er aðeins meira heldur en félagið borgar til að kaupa argentínska bakvörðinn Gaston Avila frá Royal Antwerp í Belgíu.
Hægri bakvörðurinn Anton Gaaei er kominn úr röðum VIborg í Danmörku á meðan markvörðurinn Diant Ramaj kemur frá Eintracht Frankfurt og varnarmaðurinn Jakov Medic frá St. Pauli. Að lokum er Branco van den Boomen kominn á frjálsri sölu frá Toulouse í Frakklandi.
Þessir leikmenn eru allir komnir auk Chuba Akpom og Benjamin Tahirovic sem komu til félagsins eftir að hafa verið hjá Middlesbrough og AS Roma.
??? @MikautadzeG ???
— AFC Ajax (@AFCAjax) August 30, 2023


Mynd: EPA


Mynd: Ajax





