Fotbolti.net
28.08.23 - 18:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Willem II kaupir Rúnar (Staðfest) - Ein stærsta sala í sögu Öster

Willem II kaupir Rúnar (Staðfest) - Ein stærsta sala í sögu Öster
Canon
Hollenska félagið Willem II hefur gengið frá kaupum á íslenska vinstri bakverðinum Rúnari Þór Sigurgeirssyni frá sænska félaginu Öster.

Rúnar Þór er Keflvíkingur sem fór til Öster eftir síðasta tímabil með Keflavík. Hann kom vel inn í hlutina hjá Öster, var í stóru hlutverki og vakti áhuga félaga í efstu deild Svíþjóðar.

Í síðustu viku var svo vakin athygli á því að Willem II, sem er í næst efstu deild Hollands, hefði boðið oftar en einu sinni í leikmanninn.

Rúnar er 23 ára og á hann að baki tvo A-landsleiki. Hann byrjaði sextán leiki með Öster í sænsku B-deildinni, skoraði eitt mark og lagði upp tvö.

Á heimasíðu Öster segir að um eina stærstu sölu í sögu félagsins sé að ræða. „Við þökkum Rúnari fyrir tíma hans hjá félaginu og óskum honum alls hins besta í framtíðinni. Við höfum styrkt bakvarðarstöðuna í glugganum og erum að vinna í því að styrkja hópinn enn frekar áður en glugginn lokar á fimmtudag," segir Vito Stavljanin sem er yfirmaður íþróttamála hjá Öster.

Öster keypti Þorra Mar Þórisson frá KA í glugganum og getur hann spilað báðar bakvarðastöðurnar. Öster er sem stendur í fjórða sæti Superettunnar.

Á heimasíðu Willem II er tekið fram að skrifi undir samning út tímabilið 2025/26. „Fyrir mér er Willem II kjörið skref fyrir mig. Hollenskur fótbolti er með sterkt orðspor og passar vel við minn leikstíl. Ég er varnarmaður, en ég vil líka sýna mig fram á við. Það er mikil ástríða og orka í mínum leik. Ég veit hvaða leikur er næsta sunnuda og ég er mjög spenntur fyrir nágrannaslagnum!" segir Rúnar.
„Hann er leikmaður sem líður vel með boltann, fer oft upp vinstra megin og er klárlega með sigurhugarfar," segir Teun Jacobs, tæknistjóri Willem II.

„Njósnarar okkur eru ekki bara virkir í Hollandi, þeir skoða líka alþjóðlega möguleika. Rúnar hefur verið á lista hjá okkur í nokkurn tíma og við erum ánægður með að fá hann á þriggja ára samningi," bætir Jacobs við.

Willem II er í 3. sæti B-deildarinnar sem stendur þegar flest lið hafa spilað þrjá leiki. Næsti leikur liðsins er gegn NAC Breda á sunnudag.


Willem II kaupir Rúnar (Staðfest) - Ein stærsta sala í sögu Öster
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.