Fotbolti.net
29.08.23 - 09:22
Elvar Geir Magnússon

Castagne til Fulham (Staðfest)

Timothy Castagne.

Timothy Castagne.

Canon

Mynd: Fulham

Belgíski hægri bakvörðurinn Timothy Castagne er kominn til Fulham frá Leicester. Hann hefur skrifað undir samning til 2027, með möguleika á framlengingu um eitt ár til viðbótar.

„Mér líður mjög vel. Þetta hefur verið langur gluggi en loksins er ég mættur hingað og er ánægður með að vera hér," segir þessi 27 ára leikmaður.
„Hann er fjölhæfur og hæfileikaríkur leikmaður með mikla reynslu. Hann er frábær viðbót við okkar hóp," segir Tony Khan, stjórnarmaður Fulham.

Castagne hefur spilað 33 landsleiki fyrir Belgíu. Hann lék með Leicester frá 2020, þegar hann kom frá Atalanta.

Fulham er með fjögur stig eftir þrjár fyrstu umferðir ensku úrvalsdeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.