Fotbolti.net
29.08.23 - 13:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Beto í Everton (Staðfest)

Beto er mættur á Goodison Park.

Beto er mættur á Goodison Park.

Canon

Mynd: EPA

Everton hefur gengið frá kaupum á sóknarmanninum Beto en hann kemur til félagsins frá Udinese á Ítalíu.
Kaupverðið er um 25,8 milljónir punda. Þessi 25 ára gamli sóknarmaður gerir samning við Everton sem gildir út tímabilið 2027.

„Ég veit að liðið þarf að skora fleiri mörk og ég mun reyna að hjálpa við það. Ég elska að skora mörk og ég veit að liðið þarf hjálp við það," sagði Beto.

Everton hefur lengi verið á eftir Beto sem skoraði tíu mörk í 33 leikjum með Udinese í ítölsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. Hann skoraði í heildina 22 mörk í 64 leikjum í gegnum tíma sinn hjá Udinese.

Everton hefur farið afar illa af stað í ensku úrvalsdeildinni og er liðið sem stendur á botni deildarinnar án stiga.

Sjá einnig:
„Ég vann á KFC fyrir þremur árum"

<b>Enski boltinn</b> - Költhetjan Nunez verður að vera betri en Origi

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.