Fotbolti.net
30.08.23 - 18:20
Ívan Guðjón Baldursson

Chaibi fær áttuna (Staðfest) - Þrettándi sem kemur til Frankfurt

Chaibi fær áttuna (Staðfest) - Þrettándi sem kemur til Frankfurt
Canon

Mynd: Getty Images

Það er mikið umbreytingasumar í gangi hjá fyrrum Evrópudeildarmeisturum Eintracht Frankfurt, sem er búið að missa tvo lykilmenn á frjálsri sölu auk þess að selja aðra tvo lykilmenn frá sér.

Félagið var að staðfesta komu Fares Chaibi frá Toulouse í Frakklandi en þessi tvítugi sóknartengiliður var meðal annars eftirsóttur af Arsenal í sumar. Frankfurt borgar rúmar 10 milljónir evra fyrir Chaibi auk árangurstengdra aukagreiðslna og heldur Toulouse vænu prósentuhlutfalli af næstu sölu leikmannsins.

Chaibi er aðeins 20 ára gamall og stóð sig vel í efstu deild franska boltans á síðustu leiktíð. Hann á þrjá landsleiki að baki fyrir Alsír og verður gríðarlega spennandi að fylgjast með þróun hans í þýska boltanum.

Sænski miðjumaðurinn Hugo Larsson er þá kominn úr röðum Malmö fyrir um 8 milljónir evra en hann er bráðefnilegur og aðeins 19 ára gamall, með tvo leiki að baki fyrir A-landslið Svía. Hann kostaði svipað mikið og Eric Junior Ebimbe sem kemur frá franska stórveldinu Paris Saint-Germain eftir að hafa staðið sig vel á láni hjá Frankfurt á síðustu leiktíð, þar sem hann kom við sögu í 28 leikjum. Ebimbe er 22 ára miðjumaður með fjóra leiki að baki fyrir yngri landslið Frakklands.

Kantmaðurinn Ansgar Knauff og miðvörðurinn Nnamdi Collins eru þá komnir frá Borussia Dortmund á meðan bakvörðurinn sókndjarfi Philipp Max er kominn úr röðum PSV Eindhoven, eftir að hafa verið hjá Frankfurt á láni á síðustu leiktíð.

Frankfurt er búið að krækja í framherjann Jessic Ngankam frá Hertha Berlin, eftir að hann hafnaði að ganga í raðir Union Berlin, Brasilíski markvörðurinn Kaua Santos sem vann HM U20 landsliða er einnig kominn til félagsins ásamt Ellyes Skhiri og Davis Bautista.

Frankfurt var einnig búið að krækja í Omar Marmoush, Robin Koch og Willian Pacho í sumar eins og hefur verið greint frá í fréttum á Fótbolti.net.

Þetta eru í heildina tíu leikmenn nýir sem Frankfurt hefur nælt sér í í sumar - auk þriggja leikmanna sem voru hjá félaginu á láni á síðustu leiktíð.

Chaibi fær áttuna (Staðfest) - Þrettándi sem kemur til Frankfurt
Canon

Mynd: EPA

Chaibi fær áttuna (Staðfest) - Þrettándi sem kemur til Frankfurt
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.