Jesper Lindström til Napoli (Staðfest)

Lindström í leik með danska landsliðinu.

Mynd: Getty Images

Danski landsliðsmaðurinn Jesper Lindström hefur verið keyptur til Ítalíumeistara Napoli, frá Eintracht Frankfurt.
Hann fer reyndar í fyrstu á lánssamningi fyrir 5 milljónir evra en Napoli skuldbindur sig til að kaupa hann fyrir 20 milljónir. Danska félagið Bröndby, fyrrum félag Lindström, fær 15% af kaupverðinu.

Lindström, sem er 23 ára, hefur gert fimm ára samning sem gildir til 2028. Daninn kom til Ítalíu á mánudag og fór í gær í læknisskoðun.
Hann var valinn nýliði ársins í þýsku Bundesligunni tímabilið 2021-22 og hefur síðan skoða tólf mörk og átt níu stoðsendingar síðustu tvö tímabil.
Þá hefur hann spilað tíu landsleiki fyrir Danmörku og skoraði sitt fyrsta landsliðsmark í vináttulandsleik gegn Serbíu 2022.

Benvenuto Jesper! pic.twitter.com/k3jORuuXFs
— AurelioDeLaurentiis (@ADeLaurentiis) August 29, 2023