Fotbolti.net
29.08.23 - 21:14
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Lengjudeild kvenna: Víkingur spilar í Bestu deildinni næsta sumar (Staðfest)

Nadía Atladóttir hér fremst í flokki

Nadía Atladóttir hér fremst í flokki

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

Víkingur R. 4 - 2 Fylkir
1-0 Nadía Atladóttir ('17 )
1-1 Eva Rut Ásþórsdóttir ('56 )
2-1 Nadía Atladóttir ('60 )
3-1 Linda Líf Boama ('71 )
3-2 Eva Rut Ásþórsdóttir ('76 )
4-2 Sigdís Eva Bárðardóttir ('81 )
Lestu um leikinn

Víkingur tryggði sér sigur í Lengjudeildinni og þar með sæti í Bestu deildinni með sigri á Fylki í kvöld.

Það var mikið fjör í fyrri hálfleiknum en aðeins eitt mark leit dagsins ljós. Það var Nadía Atladóttir sem skoraði það fyrir Víking eftir hornspyrnu frá Bergdísi Sveinsdóttur en Mist Rúnarsdóttir sem textalýsti leiknum hér á Fótbolti.net taldi jafnvel að Bergdís hafi átt markið.

Eva Rut Ásþórsdóttir jafnaði fyrir Fylki með marki beint úr aukaspyrnu snemma í síðari hálfleik.

Nadía var ekki lengi að ná forystunni aftur og Linda Líf Boama skoraði þriðja mark Víkings í kjölfarið. 

Fylkisstúlkur gáfust ekki upp og Eva Rut minnkaði muninn en það var svo Sigdís Eva Bárðardóttir sem gulltryggði Víkingi sigurinn og bikarmeistararnir munu því leika í Bestu deildinni á næstu leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.