Fulham fær markvörð frá Swansea (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Þýski markvörðurinn Steven Benda er fimmti leikmaðurinn sem gengur til liðs við Fulham í sumar.
Benda er 24 ára gamall og stóð sig vel á milli stanga Swansea á síðustu leiktíð, en kaupverðið er þó talið vera innan við 1 milljón punda. Carl Rushworth, sem er hjá félaginu á láni frá Brighton, er aðalmarkvörður Swansea sem stendur.
Benda er hugsaður sem varamarkvörður fyrir Fulham og mun veita Marek Rodak samkeppni um annað sætið í goggunarröð markvarða félagsins. Bernd Leno er aðalmarkvörðurinn.
Fulham hefur þegar krækt í varnarmennina Calvin Bassey og Timothy Castagne í sumar, auk kantmannsins Adama Traore og framherjans Raul Jimenez.
A new addition to the GK unit. ???? pic.twitter.com/BAcOzpCHfm
— Fulham Football Club (@FulhamFC) August 30, 2023





