Baleba mættur til Brighton (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Hinn 19 ára gamli Carlos Baleba er genginn til liðs við Brighton frá Lille.
Hann gerir fimm ára samning við félagið og Fabrizio Romano segir að kaupverðið sé 30 milljónir evra.
Baleba er frá Kamerún en hann er hugsaður sem arftaki Moises Caicedo sem gekk til liðs við Chelsea í sumar fyrir rúmlega 100 milljónir punda.
„Hann er mjög góður leikmaður. Hann er ungur en leikmaður sem hentar okkar leikstíl. Hann verður framtíð félagsins," sagði Roberto de Zerbi stjóri Brighton.
We're delighted to confirm the signing of Carlos Baleba from Lille, for undisclosed terms! ????
— Brighton & Hove Albion (@OfficialBHAFC) August 29, 2023





