Fyrrum leikmaður Vals rekinn frá Charlton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Enska þjálfaranum Dean Holden var í gær sagt upp störfum hjá enska C-deildarfélaginu Charlton Athletic.
Holden tók við Charlton í desember á síðasta ári og stýrði liðinu í 10. sæti deildarinnar.
Það hefur ekki gengið jafn vel á þessari leiktíð en liðið hefur tapað fjórum af fyrstu fimm leikjunum og situr í 19. sæti deildarinnar með aðeins 3 stig.
Charlton sendi frá sér tilkynningu í gærkvöldi og greindi þar frá því að Holden væri ekki lengur stjóri félagsins.
Holden var áður stjóri Stoke og Bristol City í ensku B-deildinni en einhverjir Íslendingar ættu að kannast við hann enda spilaði hann með Val í Símadeildinni árið 2001.
Hann lék sjö leiki í deild og tvo í bikar en hann kom til félagsins á láni frá Bolton Wanderers.