Balogun kominn til Mónakó (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
AS Mónakó er búið að staðfesta félagsskipti Folarin Balogun til félagsins frá Arsenal.
Balogun er 22 ára gamall framherji sem skoraði 22 mörk í 39 leikjum á láni hjá Reims á síðustu leiktíð.
Mónakó borgar 40 milljónir evra fyrir Balogun og heldur Arsenal veglegu hlutfalli af endursölurétti leikmannsins.
Hann er búinn að gera fimm ára samning við félagið og verður spennandi að fylgjast með þróun hans í Frakklandi.
Balogun er fimmti leikmaðurinn sem kemur til Mónakó í sumar eftir að félagið krækti í Denis Zakaria, Mohamed Salisu, Philipp Köhn og Wilfried Singo.
????????
— AS Monaco ???????? (@AS_Monaco) August 30, 2023
???????????? ???????????????????????????? ???????? ???????????????????????? ??????#WelcomeBalogun ???????? pic.twitter.com/QdAIKcwWd8





