
Celta krækti í Douvikas og Bamba (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Spænska félagið Celta Vigo var að ganga frá kaupum á gríska framherjanum Anastasios Douvikas, sem er 24 ára gamall og kemur úr röðum FC Utrecht í Hollandi.
Hjá Utrecht skoraði Douvikas 22 mörk í 38 leikjum á síðustu leiktíð og greiðir Celta 12 milljónir evra fyrir, auk prósentuhlutfalls ef leikmaðurinn verður seldur áfram.
Góðar líkur eru á því að Celta muni bæta leikmönnum við sig á lokadögum félagsskiptagluggans, eftir sölu á Gabri Veiga til Al-Ahli fyrir um 40 milljónir evra. Þá missti félagið einnig Javi Galan til Atletico Madrid í sumar og þá er Denis Suarez farinn til Villarreal á frjálsri sölu eftir rifrildi við eiganda Celta.
Kantmaðurinn Jonathan Bamba er þó kominn til félagsins á frjálsri sölu frá Lille. Bamba var meðal annars eftirsóttur af Nice og Marseille í franska boltanum en hann ákvað að skipta yfir til Spánar frekar.
Bamba er 27 ára kantmaður sem þótti gífurlega mikið efni á sínum tíma þar sem hann spilaði 21 leik með U21 landsliði Frakka en tók aldrei stökkið upp í A-landsliðið. Hann hefur gefist upp á að reyna og er byrjaður að spila fyrir landslið Fílabeinsstrandarninar í staðinn.
Bamba hefur verið eftirsóttur af ýmsum stórliðum undanfarin ár en hann kom að 13 mörkum í 35 leikjum með Lille á síðustu leiktíð.
Sænski miðvörðurinn Carl Starfelt er þá einnig kominn eftir tvö frábær ár hjá Celtic í skoska boltanum, ásamt Carlos Dotor sem er miðjumaður sem kemur upp úr akademíunni hjá Real Madrid.
Að lokum krækti félagið í Manu Sanchez, vinstri bakvörð sem er uppalinn hjá Atletico Madrid, til að fylla í skarðið fyrir Javi Galan, sem er einn af bestu bakvörðum spænska boltans.
Celta rétt forðaðist fall á síðustu leiktíð og hefur aðeins nælt sér í eitt stig úr fyrstu þremur umferðunum á nýju tímabili.
???????? ???????????????????????????????? ??
— RC Celta English (@RCCeltaEN) August 29, 2023
1?2? pic.twitter.com/EMzZmBJZyk


Mynd: EPA
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Alaves | 0 | 0 | 0 |
| 1 | Real Sociedad | 2 | +4 | 6 |
| 2 | Athletic | 0 | 0 | 0 |
| 2 | Barcelona | 2 | +4 | 6 |
| 3 | Atletico Madrid | 2 | +4 | 4 |
| 3 | Atletico Madrid | 0 | 0 | 0 |
| 4 | Girona | 2 | +1 | 4 |
| 4 | Barcelona | 0 | 0 | 0 |
| 5 | Betis | 0 | 0 | 0 |
| 5 | Levante | 2 | +1 | 4 |
| 6 | Celta | 0 | 0 | 0 |
| 6 | Real Madrid | 1 | +3 | 3 |
| 7 | Deportivo | 0 | 0 | 0 |
| 7 | Eibar | 1 | +1 | 3 |
| 8 | Leganes | 1 | +1 | 3 |
| 8 | Elche | 0 | 0 | 0 |
| 9 | Espanyol | 0 | 0 | 0 |
| 9 | Valencia | 1 | +1 | 3 |
| 10 | Getafe | 0 | 0 | 0 |
| 10 | Betis | 2 | -1 | 3 |
| 11 | Espanyol | 1 | 0 | 1 |
| 11 | Levante | 0 | 0 | 0 |
| 12 | Malaga | 0 | 0 | 0 |
| 12 | Sevilla | 1 | 0 | 1 |
| 13 | Osasuna | 0 | 0 | 0 |
| 13 | Athletic | 1 | 0 | 1 |
| 14 | Racing Santander | 0 | 0 | 0 |
| 14 | Getafe | 1 | 0 | 1 |
| 15 | Deportivo | 2 | -3 | 1 |
| 15 | Rayo Vallecano | 0 | 0 | 0 |
| 16 | Celta | 2 | -2 | 0 |
| 16 | Real Madrid | 0 | 0 | 0 |
| 17 | Malaga | 2 | -2 | 0 |
| 17 | Mallorca | 38 | -10 | 42 |
| 17 | Real Sociedad | 0 | 0 | 0 |
| 18 | Sevilla | 0 | 0 | 0 |
| 18 | Alaves | 2 | -3 | 0 |
| 19 | Villarreal | 2 | -4 | 0 |
| 19 | Valencia | 0 | 0 | 0 |
| 19 | Girona | 38 | -16 | 41 |
| 20 | Villarreal | 0 | 0 | 0 |
| 20 | Oviedo | 38 | -34 | 29 |
| 20 | Las Palmas | 2 | -5 | 0 |





