Arsenal kaupir heimsmeistara frá Barcelona (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA

Spænski varnarmaðurinn Laia Codina er gengin til liðs við Arsenal frá Barcelona.
Codina er 23 ára gömul en hún var í byrjunarliði spænska landsliðsins í öllum leikjunum í útsláttakeppni HM þegar liðið varð heimsmeistari á dögunum eftir sigur gegn Englandi.
„Laia er heimsklassa varnarmaður og ég er í skýjunum að vinna með henni hérna hjá Arsenal. Hún er með góða blöndu af tæknilegri getu og líkamsstyrk. Við trúum því að það muni hjálpa henni að aðlagast okkar leikstíl hratt," sagði Jonas Eidevall stjóri Arsenal.
„Hún er með mikla reynslu af því að spila á hæsta stigi og vinna bikara. Ég er bjartsýnn á að hún sé frábær viðbót í hópinn okkar."





