Fotbolti.net
29.08.23 - 19:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Goncalo Guedes aftur til Benfica á láni (Staðfest)

Goncalo Guedes aftur til Benfica á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Goncalo Guedes verður áfram hjá Benfica en hann er farinn aftur til Portúgals frá Wolves. Hann mun leika með Benfica út þessa leiktíð á láni.

Þessi 26 ára gamli Portúgali gekk til liðs við Wolves síðasta sumar en hann lék aðeins 18 leiki áður en hann snéri aftur heim til Portúgal í janúar og spilaði sex leiki á láni hjá Benfica áður en hann þurfti að fara í að gerð á hné í mars.

„Eftir erfitt tímabil hjá Goncalo vegna meiðsla á síðasta ári er mikilvægt að hann fari og fái eins maragar mínútur og hægt er, í umhverfi sem hann þekkir vel. Þetta er félag sem hann þekkir vel og þeir hafa átt stóran þátt í endurhæfingunni svo þetta er rökrétt skref," sagði Matt Hobbs yfirmaður fótboltamála hjá Wolves.

Guedes gekk til liðs við Wolves frá Valencia en hann er uppalinn hjá Benfica.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.