Freysi fær fyrrum varnarmann Barcelona og Stoke (Staðfest)

Muniesa í leik með Stoke.

Mynd: Getty Images

Muniesa í leik með Stoke.

Mynd: Getty Images
Danska úrvalsdeildarfélagið Lyngby hefur tryggt sér varnarmanninn Marc Muniesa sem var samherji Arons Einars Gunnarssonar hjá Al-Arabi í Katar.
Muniesa er 31 árs og kom upp úr unglingastarfi Barcelona og lék tvo leiki fyrir aðallið félagsins áður en hann hélt til Stoke City þar sem hann var 2013-2018.

Hann var hjá Al-Arabi frá 2019 en yfirgaf félagið í sumar. Hann hefur leikið fyrir öll yngri landslið Spánar og á tvo óopinbera landsleiki fyrir Katalóníu.
Muniesa á að fylla skarð Lucas Hey sem Lyngby seldi til Nordsjælland og gerir tveggja ára samning.
Freyr Alexandersson þjálfar Lyngby en með liðinu spila Sævar Atli Magnússon, Kolbeinn Finnsson og Andri Lucas Guðjohnsen.