Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25175 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR27.07.2023, 17:30

Arthur til Fiorentina (Staðfest)

Brasilíski miðjumaðurinn Arthur er genginn í raðir Fiorentina á lánssamningi út tímabilið. Fiorentina hefur klásúlu um að kaupa hann alfarið. Áður en Arthur fór til Flórens skrifaði hann undir nýjan samning við Juventus til 2026.

FRÉTTIR27.07.2023, 16:52

Jón Sveins rekinn frá Fram (Staðfest)

Jón Sveinsson hefur verið látinn fara frá Fram en þetta kemur fram í yfirlýsingu frá félaginu. Hans síðasti leikur við stjórnvölinn var 4-0 tap gegn Stjörnunni í gær. Í tilkynningunni kemur fram að Ragnar Sigurðsson, sem var aðstoðarmaður Jóns, og Aðalsteinn Aðalsteinsson, sem er yfirmaður fótboltamála hjá félaginu, hafi tekið við stjórn liðsins til bráðabirgða en ekki er ljóst hversu lengi það verður. Þórhallur Víkingsson sem var einnig aðstoðarmaður Jóns lætur af störfum samhliða honum. Fram er í fallsæti og hefur tapað fjórum leikjum í röð. Liðið hefur fengið á sig flest mörk allra liða og auk þess ekki skorað í fjórum leikjum í röð. Fram á leik gegn Fylki þann 8. ágúst svo það er nokkuð langt í næsta leik .

FRÉTTIR27.07.2023, 16:45

Albert Hafsteins heim í ÍA (Staðfest)

ÍA tilkynnti rétt í þessu að miðjumaðurinn Albert Hafsteinsson væri genginn í raðir félagsins. Hann kemur til félagsins eftir þrjú og hálft tímabil í Fram. Skagamaðurinn hefur verið orðaður við ÍA reglulega eftir brottför sína og voru sögur farnar að heyrast á síðustu dögum að hann væri á förum til uppeldisfélagsins. Samningur hans við Fram átti að renna út í lok tímabilsins. Hann lék með Fram gegn Stjörnunni í gær en er nú, degi síðar, kominn í ÍA.

FRÉTTIR27.07.2023, 16:30

Chukwueze til AC Milan (Staðfest)

AC Milan hefur keypt Samuel Chukwueze frá Villarreal fyrir 28 milljónir evra og hefur nígeríski leikmaðurinn skrifað undir samning til 2028. Chukwueze klæðist treyjunúmeri 21 á komandi tímabili. Sem hluti af samkomulaginu hefur Villarreal fengið varnarmanninn Matteo Gabbia lánaðan en ekkert ákvæði er um möguleg kaup. Chukwueze er 24 ára og skoraði 12 mörk og átti 11 stoðsendingar í 50 mótsleikjum fyrir Villarreal á síðasta tímabili.

FRÉTTIR27.07.2023, 13:15

Selfoss fær bandarískjan framherja (Staðfest)

Selfoss hefur tilkynnt um komu bandaríska framherjans Haley Marie Johnson til félagsins. Hún á að hjálpa liðinu að bjarga sér frá falli úr Bestu deildinni. <i>„Johnson er 23 ára og kemur úr Milwaukee háskóla. Eftir útskrift hefur hún leikið með RKC Third Coast í 2. deild í Bandaríkjunum,"</I> segir í tilkynningu félagsins.

FRÉTTIR27.07.2023, 11:24

Jordan Henderson til Al Ettifaq (Staðfest)

Jordan Henderson er genginn í raðir sádi-arabíska félagsins Al-Ettifaq eftir tólf ár hjá Liverpool. Al-Ettifaq greiðir Liverpool 12 milljónir punda fyrir enska landsliðsmanninn auk mögulegra bónusa.

FRÉTTIR27.07.2023, 11:20

Bruun Larsen til Burnley (Staðfest) - Skrímsli hf. kynning

Jacob Bruun Larsen er genginn í raðir Burnley á láni út tímabilið frá þýska félaginu Hoffenheim. Bruun Larsen er 24 ára vængmaður sem uppalinn er hjá Lyngby en fór ungur að árum til Dortmund. Larsen var í fjögur ár hjá Dortmund en eitt tímabilið fór hann á láni til Anderlecht og hitti hann þar fyrir Vincent Kompany sem er í dag stjóri Burnley.

FRÉTTIR26.07.2023, 14:30

Igor Julio til Brighton (Staðfest)

Brighton hefur keypt brasilíska miðvörðinn Igor Julio frá Fiorentina fyrir 14,5 milljónir punda. Þessi 25 ára leikmaður hefur skrifað undir fjögurra ára samning við enska úrvalsdeildarfélagið. Roberto de Zerbi stjóri Brighton beindi athygli sinni að Igor eftir að félagið gafst upp á að fá Levi Colwill frá Chelsea. 40 milljóna punda tilboði félagsins var hafnað en Colwill var á láni hjá Brighton á síðasta tímabili og hjálpaði liðinu að enda í sjötta sæti.

FRÉTTIR26.07.2023, 09:30

Castellanos til Lazio (Staðfest) - Sow næstur

<p>Lazio er búið að festa kaup á Valentín 'Taty' Castellanos, 24 ára framherja sem skoraði 14 mörk í 37 leikjum á láni hjá Girona á síðustu leiktíð.</p>

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.