Danny Guthrie hefur áhuga á að taka við Fram - „Elskaði tíma minn hjá félaginu“

Danny Guthrie væri til í að taka við stöðunni af Nonna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Englendingurinn Danny Guthrie hefur áhuga á því að taka við Fram en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag.
Jón Þórir Sveinsson var látinn taka poka sinn í dag eftir slæmt gengi á tímabilinu.
Fram hefur ekki skorað í síðustu fjórum leikjum sínum og þá tapað átta af síðustu tíu.
Nonni stýrði Frömurum upp í Bestu deildina árið 2021 er liðið fór taplaust í gegnum allt tímabilið. Þá lenti liðið í 9. sæti Bestu deildarinnar á síðustu leiktíð en verið hrikalega ósannfærandi í sumar.
Danny Guthrie, sem spilaði áður með Liverpool og Newcastle United á Englandi, kom til Fram árið 2021 og hjálpaði liðinu að vinna Lengjudeildina, en yfirgaf félagið eftir tímabilið.
Undanfarið ár hefur hann unnið sem sem aðalþjálfari hjá EPC TFA Dubai í sameinuðu furstaríkjunum og gert það við góðan orðstír, en hann er afar áhugasamur um að taka við liði Fram.
„Já, það er klárt að ég hef áhuga á stöðunni,“ sagði Guthrie við Fótbolta.net í dag.
Guthrie spilaði undir stjórn Jóns Þóris hjá Fram. Hann er honum afar þakklátur fyrir tímann.
„Nonni gerði frábæra hluti með Fram og var mér sérstaklega góður þegar ég var þarna. Algjör toppmaður.“
Einn af hápunktum ferils Guthrie var tíminn hjá Fram og er hann til í að hjálpa félaginu hjálparhönd á erfiðum tímum.
„Ég elskaði tíma minn hjá Fram, fólkið í kringum félagið, stuðningsmennina og leikmennirnir voru mér öll frábær. Þetta var hápunktur ferilsins og væri ég til í að rétta félaginu hjálparhönd, með hvaða hætti sem er,“ sagði Guthrie enn fremur.
Guthrie hefur lokið UEFA B-þjálfararéttindum og er nú að vinna að því að að klára A-gráðuna.
Sjá einnig:
Jóns Sveins rekinn frá Fram (Staðfest)