Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25205 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR08.09.2022, 20:50

Mata og Icardi til Galatasaray (Staðfest)

Juan Mata og Mauro Icardi voru nú í kvöld kynntir sem nýir leikmenn tyrkneska félagsins Galatasaray. Icardi kemur á láni frá PSG út þetta tímabil en Mata kemur á frjálsri sölu þar sem samningur hans við Manchester United rann út fyrr í sumar. Það eru ekki einu leikmennirnir sem Galatasaray fékk í dag því félagið kynnir einnig þá Yusuf Demir (kaup frá Austria Vín), Mathias Ross Jensen (kaup frá Álaborg) og Milot Rashica (lán frá Norwich). Galatasaray rifti þá samningi við Ömer Bayram.

FRÉTTIR08.09.2022, 20:15

Leikjum morgundagsins á Englandi frestað (Staðfest)

Búið er að staðfesta að leikir morgundagsins í ensku deildarkeppnunum fara ekki fram, þeim hefur verið frestað í kjölfar andláts Elísabetar Bretlandsdrottningar. Um er að ræða leik Burnley og Norwich í Championship deildinni og Tranmere gegn Stockport County í League Two.

FRÉTTIR08.09.2022, 17:30

Redmond til Besiktas (Staðfest)

Enski framherjinn Nathan Redmond hefur yfirgefið Southampton og gengið í raðir Besiktas í Tyrklandi. Þessi 28 ára leikmaður hefur verið hjá Dýrlingunum síðan hann kom frá Norwich 2016.

FRÉTTIR08.09.2022, 14:50

Graham Potter nýr stjóri Chelsea (Staðfest)

Chelsea hefur staðfest Graham Potter sem nýjan stjóra félagsins og gerði hann fimm ára samning. Potter hefur látið af störfum hjá Brighton og hefur þegar tekið við starfinu á Stamford Bridge.

FRÉTTIR08.09.2022, 13:00

Marco Rose tekinn við Leipzig (Staðfest)

RB Leipzig hefur ráðið Marco Rose sem nýjan stjóra en Domenico Tedesco var rekinn í kjölfar 4-1 taps gegn Shakhtar Donetsk í Meistaradeildinni og 4-0 taps gegn Eintracht Frankfurt. Marco Rose vann austurríska meistaratitilinn með Red Bull Salzburg 2018 og 2019 og stýrði svo Gladbach áður en hann var ráðinn til Borussia Dortmund fyrir síðasta tímabil. Hann var hinsvegar aðeins eitt ár hjá Dortmund og var látinn fara eftir síðasta tímabil.

FRÉTTIR07.09.2022, 15:15

Walsh til Barcelona (Staðfest) - Harder ánægð að vera ekki lengur sú dýrasta

Keira Walsh er orðin leikmaður Barcelona or keypt á metuppæð frá Manchester City. Barcelona greiðir ríflega 400 þúsund pund fyrir Walsh sem er 25 ára miðjumaður. Walsh er annar enski leikmaðurinn sem fer frá til City til Barcelona í sumar því Lucy Bronze fór þangað í júní. Þær urðu báðar Evrópumeistarar með enska landsliðinu í sumar.

FRÉTTIR07.09.2022, 09:14

Tuchel rekinn frá Chelsea (Staðfest)

Todd Boehly, eigandi Chelsea, hefur ákveðið að reka Thomas Tuchel, stjóra félagsins, úr starfi. Chelsea sendi út tilkynningu rétt í þessu þar sem félagið greinir frá tíðindunum. Tuchel og hans starfsfólk er þakkað fyrir sín störf fyrir félagið og minnst á að Tuchel gerði Chelsea að Meistaradeildarmeisturum og heimsmeisturum félagsliða.

FRÉTTIR06.09.2022, 17:30

Snodgrass til Hearts (Staðfest)

Skoski leikmaðurinn Robert Snodgrass er genginn í raðir Hearts í heimalandinu. Þetta staðfestir félagið á samfélagsmiðlum sínum. Á síðasta tímabili endaði Hearts í þriðja sæti skosku deildarinnar og er í fjórða sæti deildarinnar eftir sex umferðir á þessu tímabili.

FRÉTTIR06.09.2022, 13:12

Nökkvi skrifar undir þriggja ára samning við Beerschot (Staðfest)

Nökkvi Þeyr Þórisson er orðinn leikmaður Beerschot í Belgíu. Þetta staðfestir félagið á samfélagsmiðlum sínum. Nökkvi er 23 ára sóknarmaður sem keyptur er frá KA. Hann hefur átt frábært tímabil og kveður Bestu deildina sem markahæsti leikmaður hennar.

FRÉTTIR05.09.2022, 14:25

Kristófer Ingi til VVV-Venlo (Staðfest)

Kristófer Ingi Kristinsson er genginn í raðir hollenska félagsins VVV-Venlo og skrifar hann undir samning sem gildir fram á næsta sumar. Venlo er sem stendur í 3. sæti næst efstu deildar í Hollandi, með tólf stig eftir fimm leiki. Kristófer kemur á frjálsri sölu þar sem hann rifti samningi sínum við danska félagið SönderjyskE í síðustu viku. Í samningi Kristófers er möguleiki á árs framlengingu.

FRÉTTIR05.09.2022, 12:09

Reece James skrifar undir sex ára samning (Staðfest)

Reece James, varnarmaður Chelsea, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið og er hann nú samningsbundinn fram á sumarið 2028. James er 22 ára og spilar oftast sem bakvörður eða vængbakvörður en getur einnig leyst stöðu miðvarðar.

FRÉTTIR04.09.2022, 20:52

Ross Barkley til Nice (Staðfest)

Enski miðjumaðurinn Ross Barkley skrifaði í dag undir hjá franska félaginu Nice en félagið tilkynnti um þessi óvæntu skipti á heimasíðu sinni.

FRÉTTIR04.09.2022, 00:19

Fengu loksins Coke til Ibiza (Staðfest)

<p>Spænska B-deildarliðið UD Ibiza var að staðfesta komu nýs leikmanns sem félagið hefur verið á höttunum eftir undanfarnar vikur.</p>

FRÉTTIR03.09.2022, 23:48

Marcelo kominn til Olympiakos (Staðfest)

<p>Olympiakos, gríska stórveldið sem Ögmundur Kristinsson er samningsbundinn, er heldur betur búið að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir tímabilið í þessari skemmtilegu Íslendingadeild.</p>

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.